Dagur - Tíminn Akureyri - 03.01.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 03.01.1997, Blaðsíða 1
Sandgerói Harmleikiir Karlmaður, 32 ára, var myrtur á heimili sínu í Sandgerði á nýársnótt. Sonur sambýliskonu hans hefur játað á sig verknaðinn og var hann úrskurðaður í gæsluvarð- hald í gær til 9.aprfl. Hann er 19 ára og hefur samkvæmt heimildum Dags-Tímans ekki komið áður við sögu lögreglu. Lögreglan var kölluð til um klukkan 6.30 á nýársdag. Lagt hafði verið til mannsins með hnífi og lést hann af þeim áverkum. Sambýliskona hins látna var í húsinu en hún varð ekki vitni að harmleiknum. Að sögn Þóris Magnússonar, yfirlögregluþjóns í Keflavík, höfðu yfirheyrslur í gær ekki leitt í ljós hvert tilefni árásar- innar var, en móðir unga mannsins kynntist sambýlis- manni sínum fyrir nokkrum ár- um. Áfengi mun hafa verið haft um hönd hjá öllum þremur þessa nótt. Annað alvarlegt hnífstimgu- mál kom upp á Suðurnesjum á nýársdag. 19 ára gamall maður lagði til 18 ára manns og veitti honum alvarlega áverka. Hann er úr lífshættu og liggur á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Menn- irnir þekktust og voru nokkur vitni að árásinni sem átti sér stað í samkvæmi. Árásaraðilinn hefur verið dæmdur í gæslu- varðhald til 9. janúar. Yfirlögregluþjónninn í Kefla- vík segir sláandi hve mikið sé orðið um notkun ýmissa tóla sem tengjast ofbeldi. „Slagsmál eru gróf, það er mikið um spörk í Iiggjandi menn og því er ekki að neita að það eru töluverð brögð að því að hnífar séu tekn- ir af fólki. Þetta er vissulega áhyggjuefni," segir Þórir Magn- ússon yfirlögregluþjónn. BÞ Alþýðublaðið Sæmundiir tekur við Sæmundur Guðvinsson blaðamaður hefur tekið við ritstjórn Alþýðublaðsins út janúar. Hrafn Jökulsson, sem ráðist hefur til tímaritsins Mannlífs, hefur þarmeð látið af störfum en ekki mun hafa verið óskað eftir að hann ritstýrði Al- þýðublaðinu eftir að ljóst var að hann væri á förum. -JBP Hjalteyri Forsetaframboð Fráleitt að flárhagslegt sjálfstæði mitt sé í tvísýnu Sigursteinn Jonsson let Ijosmyndara Dags-Tímans ekki raska ró sinni í gær þar sem hann var á göngu á Hjalteyri. Mynd: GS Pétur Kr. Hafstein hæstaréttardómari veðsetur hús sitt fyrir 14 milljón króna skuld. Það lá auðvitað alltaf Ijóst fyrir að ég mundi að lok- um bera persónulega ábyrgð á skuldinni og það mun ég gera. Ég lagði fram í byrjun stofnframlag 8,5 milljónir króna. Það eru rangfærslur sem heyrst hafa að til hafi verið reikningur vegna framboðsins á mínu nafni. Það voru samtök um framboð mitt sem sáu um öll íjármál þess og bankareikn- ingar voru með nafni þeirra og kennitölu," sagði Pétur Kr. Haf- stein hæstaréttardómari í sam- dýrmæt reynsla, en vissulega var hún dýru verði keypt. Ég ber þessa skuld persónulega og hef tekið bankalán til að greiða hana, hef veðtryggingu í húsi okkar hjóna. Það er alveg ljóst að ég mun geta greitt þessa skuld. Það er fráleitt að halda því fram að fjárhagslegt sjálf- stæði mitt sé í nokkurri tvísýnu," sagði Pétur Kr. Hafstein í gær. Samtökin sem stofnuð voru um framboð Péturs voru form- lega lögð niður núna um ára- mótin og reikningum lokað. Sindri Sindrason framkvæmda- stjóri Pharmaco var formaður þessara samtaka. Fréttatilkynn- ingar samtakanna er að vænta á næstu dögum. Samtökin ákváðu í október að vinna áfram að Qáröflun til áramóta, og mun hafa tekist að lækka skuldirnar nokkuð. -JBP tali við Dag-Tímann í gær. Pétur fullyrðir að framboð sitt hafi ekki áhrif á starf sitt sem dómari við Hæstarétt íslands. „Mér þykir það fráleitt. Það er auðvitað þannig með fram- boð til embættis forseta íslands að hæstaréttardómar- ar eiga ekki að vera útilokaðir frá framboði. í mínu tilviki voru stofnuð samtök um fram- boð mitt og mér til stuðnings, og sam- tökin ráku sérstak- an kosningasjóð. Af honum hafði ég ekki afskipti, eins og raunar hefur margoft komið fram,“ sagði Pétur. Pétur segir að samtökin hafi alls ekki brugðist sér, það væri öðru nær, þau hefðu unnið afar gott starf. Pétur sagði hins veg- ar ekki á vísan að róa með íjár- stuðning í forsetaframboði. í þessu tilviki hafi afraksturinn ekki orðið sá sem menn vonuðu og útgjöldin meiri en æskilegt og áætlað var. „Eftir á sé ég ekki eftir að hafa tekið þátt í forsetakjörinu. Langt frá því. Þetta hefur verið Pétur Kr. Hafstein hæstaréttardómari „Það er auðvitað þannig með Jramboð til embœttis forseta íslands að hœstaréttar- dómarar eiga ekki að vera útilokaðir frá framboði. Lífið í landinu ..pÁ futótu fáendi TRYGGVABRALT &r BREKKUGÖTU SÍMI 462 7099 - FAX 462 705 9

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.