Dagblaðið - 06.11.1914, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 06.11.1914, Blaðsíða 1
Föstud. 6. nóv. 1914 1. árg. 1. tbl. Dagblaðið »»*•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Ritstjóri Sig. Einarsson. Prentsmiðja Odds Björnssonar. • • • • • • • • • • • • • • ••••••• ••• • • • • • • • • •-• • • • • • • • • * • • • • • •••••♦• • • • • • • Erlendar símfregnir Tilkyntiing frá bresku utanríkissijórninni í London. Blöð Pjóðverja ávíta stjórnina fyrir það, að draga að setja verðhámark á kornvörur og hafa eftirlit með birgðunum. Segja þau, að vörurnar hafi hækkað fram úr hófi. Atvinnuleysi er mikið í Pýzkalandi. Uppreisnarmennirnir í Suður-Afríku eru nær gjörsigraðir. Egyptalaud lýsir drottinhylli sinni við England. Akafar orustur hafa orðið í Frakklandi og ýmsum veitt betur. Bandamönnum miðar þó norður á bóginn. Fregnir frá Pjóðrerjuni herma, að sjóorusta hafi verið við Chilestrendur. Bresku skipin Monmouth hafi sokkið en Good- hope stórskemst, en önnur skip hafi komist undan á flótta. — Bretastjórn er þetta ókunnugt. Reuters Bureau, London. 4 þýsk herskip hafa sjest við Yarmouth 3. þ. m., skutu þau sprengikúlum uppundir ströndina. Faílbyssubáturinn Halcyon lenti í orustu við þau og skemdist dálítið. Fýsku skipin lögðu niður tundurdufl. Breskur köfunarbátur lenti á tundurdufli og sökk. Eftir J\4orgunbIaðinu í Reykjavík þ. 6. r>óv. Prjónles verður keypt hœsta verði \ Carl Höepfners verzlun Til náungans! Eins og sjá má hefi jeg ráðist i að gefa út dálítið blað. Tilgangurinn er: /. Að flytja vœntanlegam lesendum þess nýustu og áreiðanlegustu frjettir og þá sjerstaklega nú þær siðustu frjettir af Norðurálfu- ófriðnum. Hefir tnjer til þess boðist trjettasamband við Morgunblaðið i Heykjavik, en það fœr nú sínar daglegu ótriðarfrjettir frá bresku utanríkisstjórninni í London. Petta frjettasamband er óejað það besta, sem vjer nú höfum föng á að fá. Allar útlendar frjett- ir verða nú eins og kunnugt er að ganga gegnum hreinsunareld- inn — hendur Englendinga verð- ur þvi máske skýrt frekar frá afreksverkum bandamanna en ella, en að œtla það, að ósannindi standi i þessum skeytum vœri ó- kurteysi gegn breska utanrikis- ráðaneytinu. 2. Að leyfa pláss hóflegum og vel- rituðum greinum um ýms mál, er almenning varðar, að þeim stjórnmálum undanskildum, sem mestri sundrung hafa valdið hing að td hjerlendis. Velrituðum pislum til skemtun- ar og fróðleiks verður tekið með rniklum þökkum. Verð blaðsins þennan mánuð út verður 75 aur. fyrir fasta kaupendur, en 5 au. kost- ar hvert eintak i lausasölu. Sveita- mönnum gefst kostur á blaðinu fyrir lœgra verð vegna þess, að ómögu- legt er að koma því i þeirra hend- ur daglega. Stjórnarskráin staðfest. Stjórnarráðinu hefir borist skeyti um pað, að konungur hafi stað- fest sem lög 3. p. m. stjórnar- skárbreytingalög síðasta alþingis, með fyrirvara þeim sem þeim fylgdi. Ur Reykjavík. jóhann jóhannesson, kaupmaður og bæjarfulltrúi Ijest 4 þ. m., kl. 71/2 árdegis, eftir mjög stutta legu. E s Botnfa og Flóra eru komin. Afgreiðslu »Sameinaða gufuskipa- ijelagsins» barst skipun símleiðis um það að kyrsetja e s. »Skálholt* þar fyrst um sinn. SIG. EINARSSON.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/171

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.