Þytur


Þytur - 30.01.1954, Blaðsíða 1

Þytur - 30.01.1954, Blaðsíða 1
SIGLFIRZKT BÆJARMÁLABLAÐ 1. tölublað. Laugardaginn, 30. janúar 1954. 1. árgangur. FYLGT ÖR HLAÐI Blað j>að, sem hér hefur göngu sína, er að þessu sinni helgað einu ákveðnu málefni. Atkvæðagreiðsi- an um héraðabanndð virðist ekki vera mikið stórmál fljótt á litið, en þegar betur er að gáð, varðar alla bæjarbúa um það, hvernig ástandið verður, ef nýtt fyrir- komulag á áfengissölu hér í bæ verður upptekið. Hér í blaðinu koma fram sjónarmið margra, ágætra og ábyrgra manna úr öll- um flokkum, sem telja það skyldu sína að aðvara bæjar- búa við afleiðingum af lok- uninni, ef hún verður samþykkt. Það er aðeins verið að ráðleggja kjósendum að velja betri kostinn af tvennu illu. Ætlunin er að blað þetta komi áfram út, og auðnist því fylgi og framtíð, mun það ræða ýmis mál, sem sjaldan eru tekin til umræðu í hinum póli- t.'sku. flokksblöðum, — vegna þröngra flokkssjónarmiða, enda þótt þau horfi til heilla fyrir þetta byggðarlag og borgara þessa bæjar í heild. Blaðið mun framvegis taka ákveðna afstöðu í hverju því máli, sem til heilla og hagsbóta horfir fyrir Siglufjörð, á þeim umbrota- og uppbygginga- tímum, sem nú fara í hönd. Ef Siglufjörður á að rísa úr rústum á ný, duga engin vettl- ingatök eða hálfvelgja, því fram- undan blasa við risavaxin verk- efni, sem kreef jast úrlausnar, svo hægt verði að lifa hér við þolan- leg skilyrði i framtíðinni. Blaðið vill leggaj þeim lið, sem af einlægni óska eftir að vinna raunliæf störf í þessa átt, en mun hinsvegar taka ómjúkum tökum á hverskonar hræsni og loddaramennsku, þar sem hug- ur fylgir ekki máli eða pólitískt ofstæki kæfir skynsamlega hugs- un, hver sem í hlut á. Engin stjórnmálasamtök standa á bak við útgáfu blaðsins, en aðeins nokkrir áhugamenn, sem gjarnan óska þess að leggja góðum mál- efnum lið. Blaðstjórnin mun fús- lega taka til birtingar greinar, sem hún telur góðar og gagn- legar og skírskotar til allra þeirra, sem efla vilja og bæta lífs- pfkomu okkar Siglfirðinga, að Viljið þið bera ábyrgðina? Þegar rætt er við forystumenn þeirra, er loka vilja áfengisút- sölunni hér og látinn í ljós efi um, að það sé hyggileg ráðstöfun, er svarið allajafna á reiðum hönd- um: „Viljið þið bera ábyrgðina á þeim afleiðingum, sem hljótast af opinni áfengisútsölu í bæn- um?“ Þetta er býsna ísmeygilega sniðug spuming. Enginn sæmi- lega góður drengur og samvizku- samur vill vísvitandi valda ófarn- aði og gæfuleysi annarra — ef til vill náinna skyldmenna, vina eða kunningja. Margur, sem áður kann að hafa verið andvígur lokun, fer að hugsa sig um. Er það ekki mikill ábyrgðarhlutur að segja nei? Er ekki langbezt að loka? Höfum við þá ekki gert skyldu okkar? Er það ekki rétt ályktun? En þá kann þó svo að fara, að upp skjóti í huganum spurningu, sem í rauninni allt veltur á. En — hvað tekur þá við? Þurrkast bærinn alveg? , Já, er það ekki ætlunin? Jú, vissulega! Og þá segjum við, nei-fólkið: Só örugg vissa og trygging fyrir því, að svo verði, segjmn við lika JÁ, og það mundi því nær hver einasti bæjarbúi gera n.k. sunnudag. En því er nú ver og miður, að fyrir hinu er óyggjandi vissa, að þetta fer á allt aðra lund. Löng og ömurleg reynsla sann- ar, að við lokunina mundi ástand- ið í áfengismálum bæjarins stór- versna og leiða af sér ennþá ömurlegri staðrejmdir, en hingað til hafa komið í ljós, meðan út- koma áhugamálum sínum á fram- færi í dálkum blaðsins. Hér mun ekki að þessu sinni, rætt frekar u mverkefni blaðsins. Framtíð þess mun ákveðast af hylli lesendanna og því, hvemig því tekst að leysa hlutverk sitt af höndum. LANÐfrÐOKAS'MTM _ M ! 9 4 8 8 í Tsþakí salan hefur verið opin. Um hvað er þarna verið að greiða atkvæði? I raun og veru ekkert annað en um það, hvort Siglfirðingar eigi og megi kaupa sitt áfengi innan bæjar eða utan, löglega eða ólöglega. Hvort þeir eigi þess kost að fá sæmilegt áfengi við föstu ákveðnu lög- verði, eða þeir neyðist til — þeir, sem fá sig til slíks — að kaupa óþverra-suli, bruggað af fáfróð- um gróðafíknum einstaklingum með frumstæðustu tækjium og að- ferðum, úr misjafnlega hollu og geðslegu hráefni, og selt við okur verði. Það verður einnig greitt at- kvæði um það, hvort neytandinn eigi heldur að kaupa áfengið í löglega opinni útsölu i’ikisins eða leynivínsalanum og smyglaranum, sem tekið hafa að sér dreifingu „vörunnar" fyrir allt að, eða yfir 100% ,,ómakslaun“. Svarið yrði vafalaust eitthvað á þessa leið: Fyrst þið viljið kaupa góðgætið, er ekki nema sanngjarnt, að þið finnið fyrir því. Þetta kunna að vera rök út af fyrir sig, en vægast sagt eru þau þverstæða við alla skynsam- lega hugsun. Við, sem ekki viljum lokun vín- útsölunnar hér, vitum vel, að langflest ykkar, sem berjist fyrir lokuninni, gerið það 1 góðum og heiðarlegum tilgangi. En okkur hinum þykir, sem þið athugið ekki nógu vel, hvað lokunin hlýt- ur að hafa í för með sér: Að seinni villan verður verri hinni fyrri. Við, sem ekki viljum lok- un, þykir líka, sem við berjumst fyrir okkar málstað í góðum til- gangi. — Okkur þykir sem sé ástandið í áfengismálunum full- slæmt fyrir, þó það versni ekki úr því sem er að stórum mun. Við vitum vel, að okkur fylgja að málum margir góðir menn, engu s'iður bindindismenn en aðrir. En því miður er von okkar tæp um sigur. Okkur er það t.d. full-ljóst, að okkar máistað greiða engir atkvæði, sem hyggjast gera sér atvinnu úr lokuninni, og hana arðbæra. Við vitum vel, að tilvonandi smyglarar, verðandi bruggarar og áhugamenn um leynivínsölu, — segja allir já. Og sennilega er sá hópurinn fjölmennari en flesta grunar. Allir þessir „forretnings- menn“ gerast ykkar jábræður, — sem loka viljið, við þessar skringilegu áfengiskosningar. En ekki þykir okkur þið öfundsverðir af fylgi þessa fólks. Eigi að gíð- ur hníga öll skynsamleg rök að því, að það segi já á kjördegi. — Annað væri varla hugsanlegt. Og vegna þessa, meðal annars, spyrjum við ykkur: Viljið þið ábyrgjast afleiðingarnar? Þið hljótið að gangast undir þessa áibyrgð 1 þeirri hæpnu von, að eftir fenginn sigur verði næg ráð til að hafa hemil á þessum lýð, og taka fram fyrir hendur hans. Reynslan bendir þó til hins gagn- stæða, en vera má að ykkur tak- ist það, og væri betur að svo færi. En það skuluð þið leggja ykkur á minnið og búast svo við, að ekki verði það átakalaust, og sennilega tvísýn baráttan. En auk alls þessa, sem nú Hef- urverið bent á, er hverjum manni sem þess óskar leikur einn að ná sér í áfengi meðan opin er Áfeng- issala ríkisins í Rvík, svo sem staðreyndir sanna, þar sem lokað hefur verið. Enn má minnast á eitt atríði,. sem margur mun telja veigahtið í þessu sambandi, en það er sú tekjuskerðing bæjarfélagsins, sem af lokuninni hlýtur að leiða, og nema kann hundruðum þúsunda árlega, og því meiri, sem sölu- svæði bæjarins stækkar við lokun Akureyrar sérstaklega. Þó siík tekjurýrnun verði bæjarfélaginu mikill hnekkir, verður þó hin sið- ferðilega hlið málsins ennþá al- varlegri hnekkir. Við Nei-menn viljum ekki. versnandi ástand. Við höfum þá bjargföstu skoðun, að þarna sé ókkar málstaður betri og spáii bjartari framtíð með vaxandi síð- gæðisþroska fólksins. Við spyrjum að lokum: 1. Hvað vinnst við lokunina? 2. Hver verða eftirköstin? 3. Getur ekki hver sem vill náð sér í áfengi eftir sem áður? 4. Hversvegna er með lokun ver- ið að gefa smyglúrum, brugg- urum og leynisölum byr í segl in og æsa til lögbrota? 5. Hversvegna er með þessu ver- ið að stórrýra tekjur bæjar- ins og nema brott einn stærsta og vissasta tekju- stofn hans. G.^Er ekki með lokun hér við- búið að næstu héruð fái út- söluna? 7. Hvað væri þá unnið? Og hverju næmi tapið fjárhags- lega og siðferðilega? 8. Eruð þið, JÁ-fólkið, þess um* (Framhald I 8. síðu)

x

Þytur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þytur
https://timarit.is/publication/425

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.