1. maí - Hafnarfirði - 01.05.1931, Blaðsíða 1

1. maí - Hafnarfirði - 01.05.1931, Blaðsíða 1
LANDSBÓKASAFN JUs 127909 1. maí. Á alþjóðafundi verkamanna í París árið 1889 var það samþykkt, að frá og með árinu 1890 skyldi 1. maí vera kröfudagur verkalýðsins um heim all,- an. Á þeim degi átti verkalýðurinn í öllum löndum að safnast saman, sýna samtakamátt sinn og stéttasamúð og bera fram kröfur sínar. Og aðalkjarn- inn í kröfum verkalýðsins á þeim degi var í upphaíi ákveðinn 8 stunda vinnudagur. I Ameríku höfðu verkamenn gert ailsherjarverkfall áiáð 1886, til þess að reyna að koma þá á 8 stunda vinnudegi. Um hálf milljón verka- manna tók þátt í því verkfalli. En þrátt fyrir mikla fórnfýsi og harða orrustu verkamanna, biðu þeir að mestu leyti ósigur í þeirri baráttu. Samkvæmt fyrirmælum valdhafanna réðist lögreglan að verkamönnum og rauf fylkingu þeirra. Fullhugarnir ,í hópi verkamanna fórnuðu blóði sínu á altari réttlætis og mannúðar. En auðvaldsblöðin svívirtu verkamenn- ina, æstu til andstÖðu gegn þeim og gerðu gys að kröfum þeirra. Blaðið „New-York Tribune“ lét þá svo um mælt, að verkamenn væru skepnur, sem ekki skildu önnur rök en of- beldi, og þess vegna ætti eingöngu að svara þeim með ofbeldi, sem þeim yrði minnisstætt allt þeirra líf. En auðvaldinu og þjónum þess tókst ekki að kæfa kröfur verkalýðs- ins né hindra framgang þeirra. I flestum menningarlöndum — þó að Islandi undanteknu —, hefir mikl- um hluta verkalýðsins þegar fyrir nokkru tekist að fá viðurkenningu á 8 stunda vinnudegi með lögum eða samningum. En hvers vegna valdi yerkalýður- inn 1. maí sem kröfudag sinn? Til þess að svara þéirri spurningu, verð- 'ur fyrst að gera sér ljóst, að verka- V' OREIGAR í OLLUM LONDUM, SAMEINIST! HAFNARFJORÐUR — 1931 ÓÐUR OREIGANS. Yfir hugsandi hevma hljómar æslcunnar raust, sem er örvandi andi og öreigans traust. Það er andi þess óborna þjóðskipulags, sem að kenmr með kynslóð hins komandi dags. Ekki heiftúðugt hatur í huga til neins, eða heimskidegt áform, sem er okkur' til meins, heldur skapandi skilning og skipulegt starf, sem að komandi kynslóð kynni að taka í arf. Vor hugsjón er hugnæm, vort liamingjuland, — þar sem úthafsins aldan einlægt gnauðar við sand. Eins og aldan, sem ólgar, er æskunnar þor, sem með þekking og menntun markar gæfunnar spor. Vaknið djarfhuga, drengir, dáðrökk æskunnar sveit, imeð eldheitar óskir út á orrustureit við gunnreifir göngum til hins geigvæna stríðs, til að vaka yfir velferð hins vinnandi lýðs. Við eigum enn eftir mörg ónumin lönd, sem að horfa yfir hafið eftir lijálpandi hönd. Þar er verkefni að vinna fyrir vakandi drótt, þar skal barist til þrautar þar til endar sú nótt. Þá skal byrjað að byggja á brotunum þeim, sem auðvaldið átti um gjörvallan heim. Þá skal máttur og menning marka framtíðar lönd vorrar öreiga æsku á óreiga strönd. Valgeir. lýðurinn héfir sögulegt hlutverk af höndum að inna í félagslegum mál- efnum og menningu þjóðanna. Kraf- an um hæfilegan vihnudag var og er krafan um félagsleg og stjórnmála- leg réttindi verkalýðsins. Og þegar jafnaðarstefnan var orðin fagn- aðarboðskapur verkalýðsins, skildi hann hlutverk sitt og varð þess vís að samfylking um hagsmunamál og réttlætiskröfu var aðal skilyrði fyrir breyttu og betra þjóðskipulagi. Jafnaðarstefnan hefir ekki til orð- ið á svipstundu. Hún hefir smáþrosk- ast í áttina til þess að verða alls- herjar inntak félagslegrar og menn- ingalegrar þróunar þjóðfélaganna. 'Verkamennirnir imyndu ekki hafa haft þolgæði og þrek til þess að fylkja sér undir rauða fánann 1. maí ár hvert í 40 ár og bera þá fram kröfu sína um þjóðfélagsumbætur, ef jafnaðarstefnan hefði ekki verið hinn trausti grundvöllur, sem allt byggðist á. Frá því að jafnaðav- stefnan fékk hinn fræðilega bún- ing og vísindalega grundvöll hinna fyrstu fræðimanna og frumherja sinna, hefir sú stefna orðið trúarjátn- ing hins þjakaða verkalýðs, sem ekki aðeins hefir rétt, heldur miklu frem- ur skyldu til þess að ummynda þjóð- skipulagið og þannig leysa af hönd- um sitt sögulega hlutverk.

x

1. maí - Hafnarfirði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 1. maí - Hafnarfirði
https://timarit.is/publication/394

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.