1. maí - Vestmannaeyjum - 01.05.1938, Blaðsíða 1

1. maí - Vestmannaeyjum - 01.05.1938, Blaðsíða 1
1. MAÍ VESTMANNAEYJUM 1. MAÍ 1938 Dagur einingarinnar 1. maí er dagur einingarinnar. — Þennan dag fyrir ári síðan gengu verkamenn, sjómenn og verkakonur Eyjanna í lmndraða- tali fýlktu liði um götur bæjarins undir fánum sínum og kröfu- spjöldum. Voldugasli og hljóm- sterkasti tónn þessa dags var krafa alþýðunnar um faglega ein- ingu, um sameiningu liinna sundr- uðu og ósamstæðu verklýðsfélaga innan véhanda Alþýðusambands íslands. Það cr engum vafa hund- ið, að þessar meginkröfur alþýð unnar 1. maí í fyrra voru horn- ar fram af slíkum krafti fjöldans, að einmitt þessi dagur mun frek- ar en nokkur annar dagnr, hafa ált sinn þátt í því, að í dag gethm við glaðst yfir því, að þessu glæsi- lega marki faglegrar einingar er þegar náð. I dag getur því alþýðan og vel- unnarar hennar fagnað því, að hin sundruðu verklýðsfélög, sem áður voru, eru nú sameinuð und- ir eitt húsþak og orðinn einn styrkur þáttur á landssamtökum islenskrar alþýðu, Alþjýðuisam- hándi' Islands. Út frá hinum volduga hátíðis- og kröfúdegi alþýðunnar liér, fyr- ir ári siðan, getum við rakið svo glæsilega athurði sem samvinnu n erklýðsf élaganna innan hæjar- sljórnarinnar og kosningabanda- lag þeirra við síðustu bæjarstjórn- arkosningar. Og út frá þeim degi, ekki sizt, liefir hin almenna ósk og krafa alþýðunnar liér í ])æ, um fullkomna sameiningu Alþýðu- ilokksins og Kommúnistaflokks- ins í einn sósíalistikan lýðræðis- flokk, hi-eiðzt út og orðið að ó- mótstæðilegu afli. Um leið og alþýða Eyjanna minnist með gleði sigra sinna á vegi einingarinnar og treystir rað- ir sínár i hinni faglegu haráttu dyrir kaupgjaldi sínu — fyrir viimu og brauði — verður henni litið yfir ógengmn veg, að næsta áfanga, en það er hin pólitíska og flokkslega eining, sameining verk- lýðsflokkanna. Alþýða Eyjanna, sem fylgst hef- ir af athygli með hinni örlagaríku haráttu úl uih heiminn milli ]ýð- ræðis og fasisma, liefir öðlast ör- ugga vissu um það, að hin faglega eining verkalýðsins og samstarf verklýðsfolkkanna er það afl, sem megnar að hrinda sókn fasismans — en lærdómar heimsviðhurða þessara hera jafnframt ótvírætt vitni þess, að svo hezt eru alþýð- unni tryggð skilyrði til gagnsókn- ar, til brautargengis meðal milli- stétta, að geta tekið ákvarðanir og framkvæmt þær tafarlaust í hin- um margvíslegu viðhorfum har- áttunnar og unnið fullnaðarsigur, — að hún liafi á að skipa sam- stilltum, pólitískum forustukröft- um. I dag verður því ein kröftug- asta og ahuennasla krafa alþýð- unnar og takmark fyrir 1. maí 1939: Sameining verklýðsflokkanna í einn sósíalistiskan lýðræðisflokk! Jón Rafnsson. Alþýðan krefst Tlnnu og Iirauðs í stað vinnuleysis og sultar Eins og kunnugt er, varði liin fráfarandi ilialds-hæjarstjórn ár- lega 130—140 þús. króna til fá- tækraframfæris. Út af fyrir sig er ekki svo mikið við þessar tölur að athuga, þegar þess er gætt, að liér er um að ræða fjöhnennan bæ, eft- ir íslenskuin mælikvarða og að tímarnir liafa verið mjög erfiðir hvað atvinnu snertir, enda vitan- legt, að lijálparþurfar bæjarstjón- aríhaldsins hér hafa ekki baðað í rósum. En þessar tölur verða ekki alveg þýðingarlausar, ef það er jafnframt upplýst, að á sama líma hefir þetta sama íhald varið ein- um 30—40 þúsundum króna árlega lil verklegra framkvæmda og at- vinnubóta — eða laklega það. — Það er og vitanlegt, að á siðasta ári eyddi íhaldsbæjarstjórnin milli 20—30 þúsundum króna til full- friskra manna, til þess að verja þá fyrir hordauða, en neitaði þeim um að vinna fyrir brauði sínu i þágu bæjarins. Þessa frámunalegu „íhaldshagsýni“ hefir engin lifandi manneskja getað útskýrt, nema frá sjónarmiði Ólafs Auðunnssonar, Gunnars gamla, Helga Ben. og ann- ara, sem mest liafa hagnasl á vöru- skiftaversluninni við bæinn. Þessi pólitik íhaldsins hefir verið höfuð- orsök þess, að enginn bær á land- inu hefir verið eins afskiftur at- vinnubótafé frá ríkinu, jafnvel þó ríkið hafi iðulega lagt fram til þessa bæjar langt fram yfir það, sem því bar lagaleg skylda til, í hlutfalli við atvinnubótaframlag bæjarins. Á þennan hátt liefir bæj- arstjórnaríhaldið liaft af bæjarfé- laginu fleiri tugi þúsunda fná rík- inu, á sama tíma sem það hefir hrundið vinnufærum bæjarþegnum í lugatali á hungurskamt fram- færsluvaldsins. Með takmarkalausum blekking- um, þ. á. m. ákveðnum loforðum um að gerbreyta þessu búskapar- lagi, að sjá öllum vinnufærum og starfsfúsum mönnum fyrir at- vinnu, í stað hungurskamtsins, um verklegar framkvæmdir, í stað at- vinnuleysisins o.s.frv. — komst í- haldið aftur til valda við siðustu bæjarstjórnarkosningar, með nýja menn á oddinum. Rússneskur ættjarðarsöngur Viðlag: Um þig leika vorsins þýðu vindar, — vinnur lífið gildi sérhvern dag. Ekkert land svo trútt, í víðri veröld. vakir yfir barna sinna hag. Vítt um þínar viltu hrjósturlendur, vegir Iagðir, brotin jarðargöng. Lífið auðga ótal vinnuhendur — ymur steppan glöðum Volgusöng. Allt frá Kiew til Kyrrahafsins stranda, kallar moldin bljúg og undrafrjó. Syðst frá Krím að svæðum pólarlanda, svarar gjörvöll þjóðin, hönd á plóg. Um þig leika vorsins o. s. frv. Hvergi fyr svo voldug vinakynni, vinnugleði og traust, á jörðu sást, — heitar elskað livergi í veröldinni, hvergi meira af sannri bróðurást. Þannig æ, við önnur lönd og þjóðir, óskum við að lifa í friði og sátt. Sérhver góður gestur er vor bróðir, gildir einu um trú og litarhátt. Um þig leika vorsins o. s. frv. Hlær við æsku árdagssól þess nýja, auðug framtíð, dáðrík bræðralag, — sem við elli, aftanskinið hlýja, eftir langan heiðurs-vinnudag. Hvergi fyrr svo tengdust orka og andi, akurmoldin, fólksins hjartablóð, — engin þjóð svo öruggt, sínu landi, — ekkert land svo náið, sinni þjóð. Um þig leika vorsins o. s. frv. Móðurjörð, sem fórnir feðra minna, frelsi galzt, — og bjóst mér trygga höfn. Engin sér um víddir akra þinna, — engin telur borga þinna nöfn. Kæra móðir, kallir þú í vanda, kem ég eins og nýtum syni ber. Sonarást mín, orka minna handa, — allt mitt líf, — og dauðinn, helgað þér. Um þig leika vorsins þýðu vindar, — vinnur lífið gildi sérhvern dag. Ekkert land svo trútt, í víðri veröld, vakir jTfir barna sinna hag. (Lauslega þýtt).

x

1. maí - Vestmannaeyjum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 1. maí - Vestmannaeyjum
https://timarit.is/publication/391

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.