1. maí - Siglufirði - 01.05.1929, Blaðsíða 1

1. maí - Siglufirði - 01.05.1929, Blaðsíða 1
1. M A 1. ÚTGEFENDUR: 1. MAÍ-NEFNDIN. I. tb. Miðvikudaginn 1. Maí. 1929. 1. Maí. 1. Maí. Á alþjóðaráðstefnu verkamanna í París 1889, sem lagði grundvöllinn að 2. Alþjóða- sambandinu (2. Internationale). voru kröfurn- ar um 8 stunda vinnudag, fyrst teknar til rækilegrar meðferðar. Var þar samþykt að verkalýðurinn tæki sejr frí 1. maí á hverju ári, og var upphaílega ætlast til að dagurinn yrði helgaður eingöngu til þess, að berjast fyrir 8 stundavinnudegi. Pessi krafa hafði geysimikla þýðingu fyrir verkalýðshreyfing- una næstu áratugi og bar hún þess greinileg merki. 1. maí 1890 voru fyrstu kröfugöngurn- ar háðar, og hafa jafnan verið haldnar síðan. Upphaflegi tilgangur dagsins breyttist fljótt og varð hann að alþjóða-frídegi verka- lýðsins um allan heim, til þess að færa fram kröfur sínar um bætt kjör í öllum myndum. íslenski verkalýðurinn á ennþá langan áfanga eftir til þess, að komast í fótspor verkalýðsins í öðrum menningarlöndum. Hjer á landi eru engin lög til um tak- mörkun vinnutíma í landi, engar atvinnu- leysistryggingar, engar örorkutryggingar, ónóg slysatrygging og svo má lengi telja. íslenski verkalýðurinn á því margs að minnast 1. maí. Pann dag á verkalýðurinn að taka höndum saman og færa fram kröf- ur sínar um hærri laun, styttingu vinnudags- ins, hollar og rúmgóðar íbúðir; nægar trygg- ingar og yfir höfuð alt það sem hann á heimtingu á. Hvar sem auðvaldið býr vaknar öreiga gnýr, það er andvarp hins þjáða, sem reyrður er fjötrum. En við helstunur þær reyrast hlekkirnir nær undan harðstjórn, sem ljet okkur fæðast í tötrum. Vor kúgun er skilyrði að skálkarnir drotni, en skilningur samtaka, að kúgunin þrotni, þegar auðvaldsins böl, þegar kúgarans kvöl vekur krafta þeim snauðu, er hóta að fjötrarnir brotni. Okkar verkmannastjett skal nú virða sinn rjett þess, að verpa af sjer auðvaldsins kúgun og helsi; inna samhuga gagn sýna mátt sinn og magn til að mölbrjóta klafann og heimta sitt frelsi. Pá rennur ei sól yfir reiði okkar barna og rauðfáninn blaktir sem öreiga stjarna þegar svikarans völd liggja svívirt og köld fyrir samtökum fjöldans, hins starfsreifa mannfjelags kjarna. G. B. íslenskur verkalýður! 1. maí skulum við minnast þeirra þrekvirkja, sem sjettabræður LANDSBÓKASAFN Jft 179387 ISLANDS

x

1. maí - Siglufirði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 1. maí - Siglufirði
https://timarit.is/publication/389

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.