17. júní - 01.11.1922, Blaðsíða 1

17. júní - 01.11.1922, Blaðsíða 1
X os~7 /77 ,113 9 1. árg. Nóvember 1922. 1. tbl. Um leiö og eg sendi frá mjer fyrsfca tölublað af 17. JUNÍ, þykir mjer rjett að láta fylgja því úr hlaði nokkur orð um tilgang þess. Fyrir mjer vakir fyrst meb blaði þessu að reyna að vekja áhuga manna á Islandi á ymsum þeim málum, er þjóðinni mega að liði verða í framsóknarbaráttu hennar. Mjer liggja ýms mál á hjarta sem eg sjaldan eba aldrei sje vikið að í íslenskum blöðum. Eg nefni þannig öll tryggingarmál. Pjóðin má ekki láta það lengur spyrj- ast, að liver sá, karl eða kona, sem af óviðráðanlegum ástæðum verði óvinnu- fær lengri eða skemri tíma, missi rjettindi sín í þjóðfjelaginu fyrir þegna hjálp. fá vifca menn líka, að eg liefi um langt skeið borið heilbrigðismál öll mjög fyrir brjósti, betri húsakynni, aukinn þrifnað og sjúkrahús. Lít þannig á, að bætt húsagerð, bæði til sveita og i kaupstööum, og þar með útrýming illra húsakynna, sjeu meðal þeirra mála, sem þjóðinni beri að leggja hvað mesta áherslu á. Framkvæmdir á þessum málum hafa í för með sjer andlegt og lík- amlegt heilbrigði í landinu. Framkvæmd á þessum sviðum verður sterkasti þátturinn í baráttunni viö tæringuna — sá þátturinn, sem haldbestur reynist og sem að síðustu leggur þann skæða óvin mannkynsins að velli. Sá er og tilgangur minn með blaði þessu ab vinna að því, að koma Islend- ingum í nánara samband við umheiminn, og mun eg reyna að haga því svo, ab hafa það eitthvað það, smátfc og stór, sem annaðhvort er til hvatningar á Islandi eða aðeins til fróðleiks. Þó hlýtur mönnum að skiljast, að mjög muni rúm vera takmarkað, í svo litlu blaði sem þessu. Annars fer alt eftir því, hverjar undirtektir blaðið fær á Islandi. A því byggist tilvera þess og vöxtur. Eg skal að lokum geta þess, að ein af aðalástæðunum til þess að eg sendi þetta blað frá mjer er sú, að eg vil ekki láta aðra ákveða það, hvort skoðanir mínar sjeu þess verðar að koma fyrir almennigssjónir, eða fara í pappírskörfuna. Kaupmannaliöfn, í nóvembermánuði 1922. porfinnur Rristjánsson.

x

17. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.